Dagarnir líða og ný ríkisstjórn.

Ég held að það sé komin tíma á það að fara að skrifa eitthvað.  Þegar ég fór af stað þá sagði ég að það liði sjálfsagt einhver tími í milli skrifa, en að það myndi skipta mánuðum, það er trúlega full mikið.  En svona er þetta, margt hefur á dagana drifið frá því síðast, raunar svo mikið að það væri að æra óstöðugan að telja það allt upp hérna.  Komin ný ríkisstjórn og allt sem því fylgir, gleði og sárindi.  Mér sýnist að menn taki stjórninni með hæfilegum fyrirvara, stíga varlega til jarðar.  Trúlega eru það skynsamleg viðbrögð.  Er ekki stundum sagt að "hveitibrauðsdagar" nýrrar ríkisstjórnar eigi að vera 100 dagar.  Framundan er sumarþing og þá er ætlunin að afgreiða ýmis velferðar og stjórnskipunarmál.  Það er trúlega nauðsynlegt til þess að því sé lokið fyrir afgreiðslu fjárlaganna í haust.  En ég vona að mínir menn séu ánægðir í þessu nýja bóli og hafi ekkert gefið eftir í samningum við "fylkinguna" en eins og þeir sem mig þekkja, vita þá er hún ekki í neinu uppáhaldi hjá mér.


Ýtt úr vör.

Sælt veri fólkið.  Þar sem að ég eiði talsverðum tíma í það að þvælast um á bloggsíðum og lesa það sem aðrir hafa að segja, þá ákvað ég að trúlega væri komi tími til þess að gera eitthvað í þessu sjálfur og fara að skrifa.  Eflaust verður þetta eitthvað gloppótt, í það minnsta til þess að byrja með.  Ég get líka lofað ykkur því að ég mun einungis skrifa þegar ég hef eitthvað að segja en ekki tuða eitthvað bar til þess að skrifa.

Þar sem að nú eru að koma kosningar og ég mikill áhugamaður í þeim efnum má fastlega gera ráð fyrir því að talsvert að umfjöllunarefninu fjalli um þau mál.  En semsagt fyrsta færslan farin á veraldarvefinn og allir klárir í bátana.


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Um bloggið

Rúnar Þórarinsson

Höfundur

Rúnar Þórarinsson
Rúnar Þórarinsson

Sauðfjárbóndi, íhaldsmaður og sveitamaður með áhuga á þjóðmálum og sveitastjórnarmálum.

 

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband